6. júli - 27. göngudagur

Vaknað klukkan sex og morgunmatur á borðum húsfreyjunnar í Langklopp.  Svo gott að láta dekra aðeins við sig.  Lögðum af stað klukkan sjö í sól og blíðu.  Dalurinn skartaði sínu fegursta og á leið okkar út úr bænum sáum við Elg á hlaupum, tignarlegt dýr en ekki vildi ég mæta einu slíku.  

Gönguleiðin fín í dag, jafnslétt og mikil lækkun, blautir stígar í skógi, malarvegir og í lokin sá steypti.  Við mættum gráhvítum kálfi á hlaupum sem hefur greinilega viljað meira frelsi.  Hann horfði á okkur, sperrti eyrun og hljóp svo í gagnstæða átt - mikið krúttlegur.  Tveir bílar komu að og það var greinilega verið að leita að strokudýrinu.  

Fallegir skýjabólstrar á bláum himni og gleði var í hjartanu mínu.  Annað slagið hjöluðu lækjarsprænur er urðu á vegi okkar, alltaf eitthvað róandi við það, fiðrildi flögruðu í kringum okkur og mauraþúfur í skógi og ein þeirra var ótrúlega stór.  Við gengum rösklega, stoppað í skýli fyrir fólk á göngu, aðeins teknir af sér bakpokar og nartað í nesti og drukkið.  

Karlarnir Ger og Daníel eru í góðum gír og það er gantast og hlegið.  En það sem mér finnst best er að við göngum mikið í þögn, ótrúlega gott að láta hugann reika um allt og ekkert.  Komum í Meslo gard gistinguna, lítil og sæt gisting á tveimur hæðum.  Tvö herbergi uppi, eitt fjögurra manna og eitt eins manns, sem ég prinsessan fékk auðvitað.  Stundum er nefnilega gott að koma snemma í náttstað því þá getur maður valið.  

Yndisleg kona tók á móti okkur hér með kaffi og kökum og konfektmola.  Þau reka hér kúabú og konan er alveg hörkunagli - ég sá það strax.  Núna er hún keyrandi hér á túninu með skítadreifarann í eftirdragi - alveg hreint á fullu, það gengur sko undan þessari.  Daníel sá litla mús á neðri hæðinni í húsinu og ég fríkaði út - get örugglega ekkert sofið í nótt!!

Sólin skín, sveitin angar og hér í Meslo gard er gott að vera.  Allt til alls og allt gert til að láta okkur líða sem best.  Í dag gengum við frá klukkan 7 til 11:20 og kílómetrarnir urðu 21.  Og nú er það komið á hreint að þann 11. júlí mun ég ganga inn í Niðarós og ljúka 32 daga göngu minni, það er ef allt gengur vel, sem ég vona og bið góða "ferðafélagann" að hjálpa mér við.  Hann er alltaf með mér og það er svo gott að hafa hann með í för.  Það er hraðferð á köllunum og ég elti bara, það gengur vel og mér líður vel, engar blöðrur og ekkert vesen.  

"Það er gott að geta glaðst yfir öllu smáu, leiftrandi daggarperlu á laufi og niði lækjarins"

Pílagríminn,

tíminn líður, bara fimm dagar eftir og hlakka mikið til.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Rúna mín ég sé að þú ert að meika það færð svona líka yndislegta hvílu og góðan aðbúnað ekkert er betra á svona ferðalagi en gott atlæti þegar komið er í náttstað.

Körlunum þínum kemur vel saman þá er flesst gott með samkomulagi. Já nú styttist þetta í annan endann það verður gott að koma heim í faðm fjölskyldu og vina ég hlakka til að hitta þig þá.

Það verður frábært að sjá hina frægu Niðaróskirkju vonandi færðu söng þar til að njóta hljómburðarins hann hlítur að vera hreint alveg afbragð. Engar blöðrur það er frábært og ekkert VESEN þú verður að passa þig að nota það orð eftirleiðis eftir því sem komið hefur fram áður ha, ha.

Nú telur þú bara niður, dagarnir líða og þú kemur heil heim. JIBBY MIN KÆRA.

Helga Jörgensen (IP-tala skráð) 7.7.2017 kl. 14:03

2 Smámynd: Torfhildur R Gunnarsdóttir

Takk Helga mín.  Já það verður gott að koma heim og hvíla sig.Ég hlakka mikið til að koma til Niðaróss eftir alla þessa göngu.

Kær kveðja til þín. 

Torfhildur R Gunnarsdóttir, 7.7.2017 kl. 16:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband